06.04.1971
Neðri deild: 89. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (1772)
217. mál, utanríkisþjónusta Íslands
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 877 þá brtt. við þetta frv., að 13. gr. falli niður og greinatalan breytist samkvæmt því.
í 13. gr. er svo fyrir mælt, að heimilt sé að fela embættismanni rn. að vera sérstakur eftirlitsmaður sendiráða og ræðisskrifstofa. Skal eftirlitsmaðurinn fylgjast með rekstri sendiráða og ræðisskrifstofa og sjá um, að þar sé gætt fyllstu hagkvæmni og sparnaðar. Eftirlitsmaðurinn skal öðru hverju heimsækja sendiráð og ræðisskrifstofur. Við 2. umr. þessa máls var lögð hér fram brtt. frá nokkrum fjvn.-mönnum um, að í stað þessarar gr. kæmi ákvæði um, að hagsýslustjóri eða fjárlaga- og hagsýslustofnunin skyldi fylgjast með þessu rn. líkt og öðrum ríkisstofnunum, varðandi hagkvæmni og sparnað í rekstri. Sú till. féll með jöfnum atkv. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé óeðlilegt að ákveða sérstakan eftirlitsmann hjá einu rn., það geti orðið til þess að skapa fordæmi um það, að slík embætti verði sett á laggirnar víðar og það sé þá verið að koma upp nýju eftirliti við hliðina á fjárlaga- og hagsýslustofnuninni. Mér finnst, að það sé eðlilegt, að um þetta rn. gildi sams konar eftirlit og um önnur rn. og ríkisstofnanir og legg þess vegna til, að þessi gr. verði látin falla niður. En það mundi hins vegar þýða það, að eftirlit yrði með rn. eftir sem áður, en það er í höndum sömu aðila og annast eftirlit með öðrum rn.