02.04.1971
Neðri deild: 82. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í B-deild Alþingistíðinda. (2036)

241. mál, sala hluta af landi jarðinnar Dysja og jarðarinnar Háagerðis

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Við sáum þetta nú eiginlega á eftir, að við hefðum átt að bæta þessu þarna inn í, en þar sem það liggur fyrir, að hreppurinn vill kaupa þetta og ætlar sér alls ekki að selja land og mun ekki gera það, þá töldum við það óþarfa, en ég vil nú verða við þessari beiðni og óska eftir að draga till. til baka til 3. umr., og munum við þá gera breytingar eftir ósk þm.