02.04.1971
Neðri deild: 83. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1914 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

242. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Hér er um að ræða systurfrv. frv. um sölu hluta jarðarinnar Dysja í Garðahreppi til Hafnarfjarðarkaupstaðar undir svokallaðan „Norðurbæ“, sem nú er þar í byggingu, og er þetta frv. eðlileg afleiðing af því, að Hafnarfjörður fær það land, sem þar um ræðir, keypt. Nefndin mælir með því, að frv. verði samþ.