02.04.1971
Neðri deild: 82. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

303. mál, sérfræðileg aðstoð fyrir þingflokka

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft málið til athugunar og mælir með, að frv. verði samþ. óbreytt. Efni frv. er öllum hv. alþm. kunnugt, enda er hér um samkomulagsmál þingflokkanna að ræða, svo að ég sé ekki ástæðu til þess að rekja það frekar, en fjhn. mælir sem sé með, að frv. verði samþ. óbreytt.