04.02.1971
Efri deild: 45. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (2275)

Starfshættir Alþingis

Forseti (JR):

Það mun nú vera stefnt að því að ljúka störfum Alþ. fyrir páska, og ég vil því mælast til þess við hv. formenn þn., að þeir hraði störfum í n. eftir því, sem frekast er hægt.

Í tilefni af orðum hv. 11. þm. Reykv. um frestun á fundum, meðan á fundum Norðurlandaráðs stæði, þá get ég upplýst, að um þetta atriði hefur enn ekki verið tekin ákvörðun, þannig að svo kann að fara, að við munum reyna að halda hér áfram fundum, jafnvel þó að nokkrir þm. þurfi að hverfa til Kaupmannahafnar í nokkra daga.