28.10.1970
Sameinað þing: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)
Úrsögn úr þingflokki
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég stend ekki upp hér til þess að lengja þessar umr. um innanflokksmál okkar Alþb.-manna, heldur til þess að láta í ljós harm minn vegna þess, að jafnágætur maður og Karl Guðjónsson skuli nú hafa sagt skilið við okkur. Um leið læt ég í ljós furðu mína yfir því, og munu eflaust fleiri gera, að hann skuli grípa hér til þess ráðs að efla samstarf vinstri manna með því að gera nú úr sjálfum sér enn einn þingflokkinn. En enn fremur vil ég láta þess getið, að mér var algerlega ókunnugt um það, hvað hér stæði til, þangað til Karl Guðjónsson kvaddi sér hljóðs. Það bréf, sem hann las hér upp, barst í hendur formanni þingflokks okkar núna rétt fyrir fundarbyrjun. Aftur á móti er svo að sjá sem aðrir aðilar hafi haft um þetta nokkurt hugboð, því að strax og fundur hefst stendur hér í dyrunum ljósmyndari Morgunblaðsins til þess að taka mynd af Karli Guðjónssyni undir þessum kringumstæðum. Og ég vil að síðustu óska honum til hamingju með þennan heiður, sem honum hefur nú hlotnazt, að verða sérstakt myndskreytingarefni fyrir málgagn Sjálfstfl.