19.10.1970
Efri deild: 3. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (JR):

Eftirtalin tvö bréf hafa borizt til forseta frá Birni Fr. Björnssyni og Gils Guðmundssyni. Bréfið frá Birni Fr. Björnssyni hljóðar svo:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstu vikum, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaðúr Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Helgi Bergs verkfræðingur, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.

Björn Fr. Björnsson,

4. þm. Sunnl.

Til forseta efri deildar.“

Bréfið frá Gils Guðmundssyni, 5. þm. Reykn., hljóðar svo:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Karl Sigurbergsson skipstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Ég vil leyfa mér að bjóða þá Helga Bergs verkfræðing og Karl Sigurbergsson skipstjóra velkomna til starfa hér í hv. þingdeild.