19.10.1970
Neðri deild: 3. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (2284)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (MÁM):

Borizt hefur svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 15. okt. 1970.

Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Magnús H. Gíslason bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

3. þm. Norðurl. v.,

Björn Pálsson.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Magnúsar H. Gíslasonar hefur áður verið skoðað og er hann boðinn velkominn til starfa.