03.11.1970
Sameinað þing: 7. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2143 í B-deild Alþingistíðinda. (2289)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 2. nóv. 1970.

Axel Jónsson, 4. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Oddur Andrésson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jón Þorsteinsson, forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Oddur Andrésson hefur áður tekið sæti sem varamaður á Alþingi í forföllum aðalmanns og kjörbréf hans þá verið rannsakað. Ég býð hann velkominn á ný til þingstarfa.