09.11.1970
Neðri deild: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2144 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (MÁM):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 4. nóv. 1970.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþingmaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Jónas Jónsson ráðunautur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Ingvar Gíslason,
3. þm. Norðurl. e.“ Kjörbréf Jónasar Jónssonar hefur áður verið skoðað og er hann boðinn velkominn til starfa.