26.11.1970
Sameinað þing: 12. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 25. nóv. 1970.

Bjarni Guðbjörnsson, 3. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun ekki geta sótt fundi Alþingis næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi. Með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis leyfi ég mér að óska þess, að varamaður taki sæti í fjarveru minni. 1. varamaður í Vestfjarðakjördæmi, Steingrímur Hermannsson verkfræðingur, er nú erlendis og getur því eigi tekið sæti á Alþingi. Þess vegna leyfi ég mér að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Halldór Kristjánsson bóndi á Kirkjubóli, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamannsins.“

Fyrir liggur kjörbréf Halldórs Kristjánssonar, útgefið af kjörstjórn Vestfjarðakjördæmis, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]