26.11.1970
Sameinað þing: 12. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund og athugað það kjörbréf, sem til hennar var vísað hér áðan, þ.e.a.s. kjörbréf Halldórs Kristjánssonar bónda á Kirkjubóli, 2. varaþm. Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi.

Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neitt athugavert við þetta kjörbréf og leggur til, að það sé samþykkt.