30.11.1970
Neðri deild: 25. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (MÁM):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Reykjavík, 27. nóv. 1970.

Þar sem ég að læknisráði mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að I. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Bjartmar Guðmundsson,

11. landsk. þm.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar ritstjóra hefur áður verið skoðað og tekur hann sæti í hv. þd. sem 11. landsk. þm. og er boðinn velkominn til starfa.