28.01.1971
Neðri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2147 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (MÁM):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. jan. 1971.

Þar sem ég að læknisráði mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Þorsteinn Gíslason skipstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Birgir Kjaran,

5. þm. Reykv.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Þorsteins Gíslasonar hefur áður verið skoðað. Er hann boðinn velkominn til starfa, en hann tekur sæti sem 5. þm. Reykv.