25.01.1971
Sameinað þing: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (BF):

Samkvæmt forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngert, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í minn garð og hv. alþm. og ég óska honum og þingheimi öllum velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.