07.04.1971
Neðri deild: 91. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

Starfslok deilda

forseti (MÁM):

Nú þegar fundum deildarinnar lýkur, vil ég nota tækifærið til að þakka ykkur hv. alþm. svo og hæstv, ríkisstj. fyrir samveruna á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og ánægjulega samvinnu. Ég vil þakka varaforsetum og skrifurum fyrir þá aðstoð, sem þeir hafa veitt mér sem forseta, og skrifstofustjóra Alþingis og starfsliði öllu færi ég mínar beztu þakkir fyrir ágæta samvinnu.

Nú þegar leiðir skiljast og við hverfum héðan, fer svo af eðlilegum ástæðum, þar sem fyrir dyrum standa alþingiskosningar, að hingað sækja ekki allir eftir endurkomu. Úr hópi okkar hverfa ýmsir hv. alþm., sem hér hafa átt langa og góða setu, sumir hverjir um nærri fjóra áratugi. Ég veit, að ég mæli fyrir hönd okkar hinna, sem treystum endurkomu hér til Alþ., þegar ég þakka þeim fyrir ánægjulegt samstarf og óska þeim allra heilla um ókomna tíma.

Ég vil svo að lokum óska öllum utanbæjarþm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, ykkar fjölskyldum öllum óska ég gleðilegs og ánægjuríks sumars og þakka samveruna á þessu þingi.