11.03.1971
Neðri deild: 60. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (2527)

247. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Út af svari hæstv. viðskrh., sem ég þakka og var skýrt og afdráttarlaust, leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu frá sjónarmiði hæstv. ráðh., að Samvinnubankinn fái þessi réttindi, ef hann sækir um þau?