11.02.1971
Neðri deild: 46. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (2960)
150. mál, náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár
Jónas Árnason:
Herra forseti. Það mun hafa verið á mánudag í síðustu viku, sem fram fór eða hófst 1. umr. hér í hv. d. um frv. til l. um náttúruvernd á vatnasviði Laxár og Mývatns. Umr. var þá frestað. Síðan hefur málið, að ég hygg, verið á dagskrá á hverjum einasta fundi hv. d., en aldrei komið til umr. Og síðast í gær var það á dagskrá og þá voru tekin til umr. mál, sem voru fyrir neðan það á dagskránni. Það var sem sé sneitt hjá málinu á fundinum. En nú bregður hins vegar svo við, að málið er alls ekki á dagskrá. Og ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. forseta: Hverju sætir?