05.03.1971
Sameinað þing: 31. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (3416)

37. mál, fiskileit og fiskirannsóknir

Steingrímur Pálsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir að afgreiða þessa till. mína um fiskileit og fiskirannsóknir. Ég vænti þess, að till. verði samþ. og í framhaldi af því verði brugðið skjótt við og byrjað á fiskileit og fiskirannsóknum í Húnaflóa og við Norðurland. Ég er sammála þeim brtt., sem hv. allshn. gerói, og ég vonast til, að niðurstaðan af þessari leit og þessari rannsókn geti orðið lyftistöng fyrir það fólk, sem býr í þessum landshluta.