01.04.1971
Efri deild: 85. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (3444)

99. mál, rækjuveiðar og rækjuvinnsla

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Þáltill. sú, sem hér um ræðir og sjútvn. hefur fjallað um, var flutt hér snemma á þingi af Karli G. Sigurbergssyni varaþm., sem þá átti hér sæti. N. varð sammála um, eins og hv. frsm. hennar og form. hefur þegar gert grein fyrir, að gera nokkrar brtt. við till., hina upphaflegu till., gera hana almenna og bæta tveimur atriðum við. Ég hef borið þessa málsmeðferð undir flm., og hann hefur ekkert við það að athuga og telur það jafnvel til bóta, að till. verður nú almenn en ekki bundin sérstaklega við skipulagningu rækjuvinnslu á Suðurnesjum. Ég taldi rétt, að þetta kæmi fram.