02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (3459)

45. mál, skelfisk- og rækjuveiðar á Breiðafirði

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og tekið hefur verið fram, voru nm. í allshn. sammála um það að mæla með þáltill. á þskj. 45, en hina vegar áskildu þeir sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram eru komnar eða fram kunna að koma. Minn fyrirvari um þetta varðar brtt. á þskj. 55 um viðbót við tillgr., eins og hún liggur fyrir, og mun ég vera því fylgjandi, að sú brtt. verði samþ., en vil ekki lengja mál mitt og vísa til rökstuðnings við till., sem fram kom við byrjun umræðunnar.