02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í D-deild Alþingistíðinda. (3554)

141. mál, flöskuverksmiðja á Íslandi

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég vil með nokkrum orðum þakka hv. allshn. fyrir jákvæðar undirtektir, og ég fellst alveg á þessa orðalagsbreytingu. Sömuleiðis er ég þakklátur Iðnaðarmálastofnuninni fyrir umsögn hennar um þessa þáltill., sem ég vona, að verði samþ.