05.04.1971
Sameinað þing: 41. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (3628)

135. mál, verknáms- og þjónustuskylda ungmenna

Frsm. meiri hl. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Till. þessi, sem hér er til afgreiðslu, hefur legið fyrir allshn. raunar bæði í vetur og í fyrravetur og var send þá til umsagnar ýmsum aðilum, svo sem kennarasamböndum og fleiri slíkum, sem yfirleitt studdu það, að slík athugun, sem till. gerir ráð fyrir, færi fram. Hins vegar var allshn. ekki að öllu leyti sammála um afgreiðslu málsins, en meiri hl. n. leggur til, eins og segir á þskj. 649, að till. verði samþ.