05.04.1971
Sameinað þing: 41. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (3646)
251. mál, vegáætlun fyrir árin 1971 og 1972
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það var leiðinlegt, að hv. 4. þm. Reykv. vissi eiginlega ekki, hvert hann ætti að beina sinni fsp. áðan, þegar hann kom í ræðustól. Hann vonaðist til, að það yrðu ráðherraskipti, en hann leit yfir salinn og kom ekki auga á nýja ráðherrann. En ég vil leitast við að svara fsp. hv. þm., þar sem hann spyr um það, hvort ekki verði notaðar þær lánsheimildir, sem um er að ræða, til hraðbrautaframkvæmdanna. Hv. þm. veit, að það verður gert, vegna þess að því hefur oft verið lýst yfir í blöðum og hér á hv. Alþ., að það eigi að ljúka þessum hraðbrautaframkvæmdum á árunum 1971 og 1972. Það verður ekki gert nema að afla þess fjár, sem hér er leitað heimildar til. Og ég efast um, að hv. þm. hafi verið búinn að lesa allar till., þegar hann fór hér upp í ræðustólinn áðan. Það var svolítið ógreinilegt, sem hann sagði.