28.01.1971
Neðri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í D-deild Alþingistíðinda. (3699)

16. mál, mengun frá álbræðslunni í Straumi

Forseti (MÁM):

Út af orðum hv. 6. þm. Reykv. mun forseti beina þeim tilmælum til iðnn., að mál það, sem hann hér um ræddi, verði þar skoðað, og að sjálfsögðu gerir forseti ráð fyrir því, að n. muni nú þegar hefja störf og freista þess að afgreiða þau mál úr n., sem gert er ráð fyrir, að reynt verði að afgreiða á þessu þingi.