03.11.1970
Sameinað þing: 7. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (4198)
320. mál, Vesturlandsáætlun
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka undir það, sem hv. 5. þm. Vesturl. sagði hér áðan um nauðsyn Vesturlandsáætlunar. Ég fann að því í fyrstu, þegar hann flutti till. sína, að hann skyldi ekki velja sér meðflm. eða þm. úr kjördæminu, heldur vera einn um flutning till. Ég fullyrði ekki, en skýt því svona fram, að ástæðan til þess, að till. hefur enn hlotið svona lítinn framgang, kunni að vera sú, að það voru ekki fleiri ágætir þm. á henni. Og ég vil jafnframt þessu láta í ljós von mína um það, að næst þegar hv. þm. spyr um framkvæmd Vesturlandsáætlunar, þá fái hann viðkunnanlegri og ánægjulegri svör hjá flokksbróður sínum.