17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í D-deild Alþingistíðinda. (4269)

325. mál, fjárhagsaðstoð ríkisins við íþróttastarfsemina í landinu

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á síðasta Alþ. fluttum við hv. 11. þm. Reykv: og 3. þm. Vestf. till. til þál. um fjárhagsaðstoð við íþróttastarfsemina í landinu. Þessari þáltill. var í lok þingsins vísað til hæstv. ríkisstj. til frekari athugunar á þessu máli, og var til þess mælzt af hálfu fjvn., sem lagði málið þá fyrir á hv. Alþ., að unnið yrði að meginefni till. fyrir fjárlagaafgreiðslu fyrir árið 1971. Nú höfum við flm. leyft okkur á þskj. 86 að flytja fsp. til hæstv. menntmrh. til þess að spyrjast fyrir um það, hvað líði þeirri framkvæmd, sem þar var stefnt að, og leyfi ég mér að vænta svars hæstv. ráðh. við því.