17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í D-deild Alþingistíðinda. (4271)

325. mál, fjárhagsaðstoð ríkisins við íþróttastarfsemina í landinu

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. menntmrh. fyrir svarið og þá ekki síður fyrir það, að að þessu máli hefur verið unnið. Það er mér og okkur flm. mikil ánægja, að það skuli hafa verið gert, því að hér er um stórt og mikið vandamál að ræða, og ég treysti því, að þegar að þessu máli verður unnið við fjárlagaafgreiðslu fyrir 1971, þá verði tekið tillit til þessarar vinnu, sem þarna liggur frammi, og þeirra gagna, sem í álitsgerðinni mun vera að finna.

Ég endurtek þakkir mínar til hæstv. ráðh.