08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í D-deild Alþingistíðinda. (4339)
337. mál, afurðalán landbúnaðarins
Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Ég vil nú þakka hæstv. landbrh. fyrir svörin, en ég var nú bara að segja frá staðreyndum áðan í sambandi við þetta bréf. Fsp. var lögð fram 23. nóv. og bréfið var gefið út 23. nóv., en hins vegar gleður það mig, að það var varla hægt að misskilja það, að fsp. hefði nú ýtt á, því að annars hefði hæstv. ráðh. ekki farið að tala um það. Og það gleður mig að vita það. Enn fremur sýnir það sig, að þessi lán hafa verið hækkuð. En þó að verðið til bændanna hafi hækkað um tæp 22%, þá munu þessi 26% verða miðuð við þá hækkun, sem varð á útsöluverðinu, þannig að mér sýnist í fljótu bragði, að lánin séu núna 55%, eins og þau voru á s.l. ári. En ég tók eftir einu, að hæstv. ráðh. minntist ekkert á gærurnar, og óskaði ég þó eftir því að fá svar um það, og enn fremur ekkert um hækkuð afurðalán út á nautgripakjöt og húðir. Það er aðeins 20 kr. núna, og það er ekki nema mjög lítill hluti af hinu raunverulega verði, og það breyttist ekkert heldur á s.l. hausti. Þetta þyrfti líka að lagfæra, en hann kom ekki inn á þetta atriði. Hins vegar gleður það mig, að einmitt kartöflurnar skuli nú vera til endurskoðunar, en það varð ekki nein hækkun á s.l. hausti á afurðaverði til kartöfluframleiðenda.
Ég sé nú ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar, enda er ekki tóm til þess í þessum fsp.-tíma. En ég vil bara segja það aftur, að það er ákaflega bagalegt, að þetta skuli dragast fram í desembermánuð, sérstaklega með mjólkurbúin. Jafnvel þó að það sé ekki hægt að ganga frá því, þyrftu vinnslustöðvarnar að vita um það, að þessi hækkun muni verða greidd og hvenær. Eins og nú er t.d. á Norðurlandi, þá eru þar mikil vandræði í sambandi við fóðurleysið. Það þarf að kaupa mikið af kjarnfóðri, og það hefði áreiðanlega verið full þörf á því, að þeir hefðu fengið þetta verð hækkað, eins og ákveðið var, út frá sínum vinnslustöðvum strax í haust. Það hefði e.t.v. verið auðveldara fyrir vinnslustöðvarnar, ef þær hefðu vitað það, að þessi lán mundu verða hækkuð, eins og nú hefur orðið. Þetta ber að harma. En við vonum, að í framtíðinni verði þessu öðruvísi fyrir komið, svo að bændur þurfi ekki að bíða marga mánuði eftir hækkuðum lánum, eins og nú hefur orðið.