15.12.1970
Sameinað þing: 17. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í D-deild Alþingistíðinda. (4459)
344. mál, bygging verkamannabústaða
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi veittist nokkuð að sveitarstjórnarmönnum í sambandi við fsp. sína og taldi, að þeir mundu ekki vilja nýta þá möguleika, sem þessi lög veita. Sem einn sveitarstjórnarmanna, sem á hér sæti á Alþ., þá vildi ég aðeins koma fram með nokkra skýringu, sem ég held, að hv. fyrirspyrjandi geri sér ekki grein fyrir.
Eins og hæstv. félmrh. réttilega benti á, eru lögin aðeins sex mánaða gömul og voru gefin út 12. maí s.l., ef ég man rétt. Þá höfðu allar sveitarstjórnir gengið frá sínum fjárhagsáætlunum, og er því ekki að vænta, að þær geti raunverulega tekið endanlega afstöðu til þess, hvað þær vilja leggja mikið fjármagn fram til byggingar verkamannabústaða, fyrr en þær hafa nú um þessi áramót samið sína fjárhagsáætlun. Ég held, að ekki muni reyna á afstöðu sveitarstjórnanna fyrr en á næsta ári, þegar fyrir liggur, að þær hafa samið sína fjárhagsáætlun og komið er í ljós, hve miklu fjármagni þær vilja verja til þessa málaflokks. Auðvitað byggist þetta allt á því, hve mikið fjármagn hver sveitarstjórn telur sig geta lagt af mörkum til byggingar verkamannabústaða, þar sem lögin gera ráð fyrir, að þeim beri að leggja þar ákveðinn hluta fram á móti framlagi ríkisins. Mér er kunnugt um það, að sú sveitarstjórn, sem ég á sæti í, hefur rætt þetta mál á fundum sínum á undanförnum mánuðum og hefur tekið ákvörðun um það að leggja fram fé af sinni hendi og skipa menn í stjórn verkamannabústaða, og ég hélt nú satt að segja, að húsnæðismálastjórn væri einnig búin að því. Það kemur nú fram, að svo er ekki, en ég veit, að það mál hefur verið til umræðu hjá húsnæðismálastjórn, og er þess að vænta, að full skipan verði komin á þessi mál, þegar sveitarstjórnir þurfa að ákveða í sambandi við fjárhagsáætlun fyrir árið 1971, hve mikið fjármagn þær leggja fram.
Mér finnst, að þessi fsp. sé óvenjulega fljótt fram borin og það sé ekki hægt að vænta þess, að árangurinn af samþykkt laganna frá því í maí í vor komi fram fyrr en eftir að sveitarstjórnir hafa samið sínar fjárhagsáætlanir fyrir árið 1971 og þær liggja fyrir.