09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í D-deild Alþingistíðinda. (4571)
353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru nú ekki tök á því í þessum fsp.-tíma að fara að ræða almennt um þetta stóra mál en það liggur ljóst fyrir að mínu viti eftir þær umr., sem hér hafa orðið, að þrátt fyrir allmikinn undirbúning og töluverðar rannsóknir í því sambandi, hvernig flugvallarmálum hér á höfuðborgarsvæðinu verði skipað til frambúðar, þá virðist vera langt í land, að búið sé að skoða þau mál niður í kjölinn. Og mér virðist, að enn þurfi að líta á margar hliðar þessara mála, eins og m. a. kom glögglega fram hjá hv. 5. þm. Vesturl.
Það liggur, að því er mér virðist, alveg ljóst fyrir eftir þessa umr., að þrír af forustumönnum stærsta stjórnmálaflokks landsins, Sjálfstfl., hafa þrjár alveg gagnstæðar skoðanir, ef svo má segja, í þessu stórmáli, að því er hér hefur komið fram. Hæstv. samgrh. hefur lýst þeirri skoðun sinni og rn., að Keflavíkurflugvöllur verði til frambúðar aðalmillilandaflugvöllurinn, en síðan sé rétt að byggja eða gera ráð fyrir, að byggður verði síðar lítill flugvöllur á Álftanesi fyrir innanlandsflug. Hv. 12. þm. Reykv., borgarstjórinn í Reykjavík, taldi, að full ástæða væri til að kanna nánar till. minni hl. þeirrar nefndar, sem síðast fjallaði um þessi mál, þ. e. till. hans um tiltölulega stóran millilandaflugvöll hugsanlega á Álftanesi. Og það var ekki á hv. þm. annað að heyra en hann hallaðist mjög að þeirri skoðun. Loks er svo skoðun hv. 1. þm. Reykn., forseta Nd. Alþ., að alls ekki komi til mála að byggja neinn flugvöll á Álftanesi, þar eigi að vera fólkvangur í þess stað.
Ég vil aðeins vekja athygli á því, að þetta mál virðist allt þurfa könnunar við, og í sambandi við það, sem fram hefur komið hér, þá vildi ég aðeins beina þeirri fsp. til hæstv. samgrh., hvort sú till., sem hann hefur nú lýst hér í þessum umr., um að gera ráð fyrir litlum flugvelli á Álftanesi, er till. samgrn. eins eða hvort það er till. ríkisstj. í heild.