13.11.1970
Neðri deild: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
101. mál, atvinnuöryggi
Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Brtt. þessi er flutt vegna ábendingar ríkisskattstjóra. Fram kom í fjhn. við athugun málsins, að hann teldi, að orðalag 2. gr. ætti að vera skýrara, og því væri rétt, að niður féllu orðin „af greiddum launum“. Skattur sá, sem gert er ráð fyrir í 2. gr., að á verði lagður, þ. e. 1½% sérstakur launaskattur, á að leggjast á alla þá sömu aðila og lög nr. 14 1965 um launaskatt gera ráð fyrir, þ. e. a. s. á greidd laun, svo og á þá aðila, sem hafa eigin atvinnurekstur. En með orðunum „af greiddum launum“ mætti misskilja, að aðeins ætti að leggja á greidd laun, en svo er ekki. Þess vegna er þessi brtt. flutt.