11.03.1971
Neðri deild: 60. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

73. mál, útvarpslög

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég tel nú, að 20. gr. sé ekki sjálffallin. Það sé hins vegar rétt að bera upp tillögu um, að hún skuli felld niður. En hitt er svo rétt, að ef tillaga um að fella hana úr, er felld, þannig að hún standi, þá þarf hún nokkurrar lagfæringar við, og það yrði gert væntanlega á milli umræðna.