06.12.1971
Neðri deild: 22. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í B-deild Alþingistíðinda. (122)
19. mál, mat á sláturafurðum
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Frv. þetta er til staðfestingar á brbl., sem út voru gefin 19. maí s.l. Það hefur þegar hlotið afgreiðslu Ed., og var þar gerð lítils háttar breyt. á lögunum umfram það, sem í brbl. fólst, að í stað atvmrn., sem kemur fyrir nokkrum sinnum í lögunum, komi landbrn. Lög þessi um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum eru frá árinu 1966. Þá var gert ráð fyrir, að ekki mætti veita leyfi til að starfrækja þau hús, sem ekki fá löggildingu, nema í næstu 3 ár. Nú eru liðin 51/2 ár síðan þessi lög öðluðust gildi, og þó eru aðeins fimm sláturhús á öllu landinu, sem hafa nú löggildingu. Það er því mjög líklegt, að Alþ. megi oft fjalla um þá breyt. á lögunum á næstu árum, sem nú er verið að gera á þeim, nema mikið átak verði gert í þessum málum á næstu tveim árum. En sláturhúsabyggingar kosta mikla fjármuni og því ekki líklegt, að uppbygging þeirra verði gerð á mjög stuttum tíma. Frv. þetta gerir ráð fyrir, að þau sláturhús, sem ekki fá löggildingu, megi þó nota áfram, ef landbrh. gefur leyfi til þess og ef yfirdýralæknir eða hlutaðeigandi héraðsdýralæknir telur, að slátrun og meðferð sláturafurða geti tekizt þar á viðunandi hátt. Undanþágu má þó ekki veita nema til eins árs í senn og eins og frvgr. er nú, þá ekki lengur en til ársloka 1973.
Eins og ég sagði áðan, eru það aðeins fimm sláturhús í öllu landinu, sem talin eru svo fullkomin að tækni og öðrum útbúnaði, að þau standist þær kröfur, sem gerðar eru til slíkra húsa, svo að þau geti fengið löggildingu. En það munu vera um 60 sláturhús í öllu landinu, sem ekki fá viðurkenningu nema til eins árs í senn.
Árið 1969 starfaði n. á vegum Framleiðsluráðs landbúnaðarins til að athuga og gera till. um skipan þessara mála. N. taldi, að á árunum 1970–1975 þyrfti að endurbæta eða byggja upp minnst 12 sláturhús til viðbótar þeim tveimur húsum, sem þá voru í byggingu, þ.e.a.s. sláturhúsunum í Borgarnesi og í Búðardal. Stofnkostnaður við byggingu og breytingu þessara 14 sláturhúsa var talið, að mundi verða 285.6 millj. á því verðlagi, sem var í marzmánuði 1970. Á þessu sést, að hér er um stórt verkefni að ræða, því að þessi áætlun nær ekki til nema 1/4 af öllum sláturhúsum landsins. En að vísu er þar um að ræða þá staði, sem fjárfjöldinn er mestur á.
Landbn. hv. d. afgreiddi þetta mál á fundi sínum s.l. þriðjudag og varð sammála um að mæla með samþykkt þess óbreytts, eins og það kom frá Ed. Eðvarð Sigurðsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.