26.04.1972
Neðri deild: 66. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1383)
3. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis
Frsm. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Hér er til umr. frv. til l. um breyt. á l. nr. 79 31. des. 1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu og um hækkun á aflahlut vegna breytts fiskverðs. Þetta er 3. mál Nd., og þar eru prentuð sem fskj. brbl., sem gefin voru út s. l. sumar, 21. júlí. Þetta frv. hefur verið margrætt á fundum sjútvn. og er loksins að koma nú til afgreiðslu. Við sendum það til umsagnar fleiri aðilum, en fengum aðeins svar frá tveimur, frá Fiskveiðasjóði og L. Í. Ú. Ég ætla aðeins í nokkrum orðum að geta umsagna þessara aðila og lesa þá upp úr þeim, með leyfi forseta.
Í umsögn Fiskveiðasjóðs segir: „Um frumvarpið sjálft teljum vér ekki ástæðu til að fjölyrða, þar sem það snertir á engan hátt Fiskveiðasjóð. Öðru máli gegnir um breytingartillögu við frumvarpið á þingskjali 228, þar sem svo er fyrir mælt að lækka skuli greiðslu til Stofnfjársjóðs fiskiskipa af þeim afla, sem landað er í erlendri höfn úr 16% af brúttósöluverðmæti í 10%.“
Ég ætla ekki að lesa meira af þessari umsögn, þar sem ég geri ráð fyrir, að hv. 10. þm. Reykv. segi eitthvað um þetta atriði, en lesa, með leyfi forseta, úr umsögn L. Í. Ú. Þar segir m. a.:
„Fundur stjórnar L. Í. Ú., varastjórnar og formanna útvegsmannafélaga innan L. Í. Ú., lýsir sig andvígan þeirri fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að afnema kostnaðarhlutdeild þá, sem fiskkaupendur greiða útvegsmönnum og ekki kemur til hlutaskipta. Greiðslur þessar eru bætur fyrir kostnaðarhækkun, sem varð vegna gengisbreytingarinnar 1968, og er hluti af rekstrargrundvelli sjávarútvegsins og hluti af lagagrundvelli rekstrar hans. Voru þær óhjákvæmilegur þáttur í að styrkja rekstraraðstöðu útgerðarinnar og réðu úrslitum um, að það tókst að rétta við hag hennar eftir áföllin 1967 og 1968.“
Síðan segir síðar í umsögninni: „Þessa samþykkt ber að skoða sem umsögn vora um fyrrgreint frv. Oss er ljóst, að vegna ákvæðis til bráðabirgða í fyrrgreindum bráðabirgðalögum, hefur verið ákveðið fiskverð þar sem tekið hefur verið tillit til efnis laganna og gerðir hafa verið kjarasamningar er grundvallast á efni þeirra, kemur vart annað til greina en umrætt frv. verði samþykkt.“
Ég ætla þá ekki að hafa fleiri orð um þetta, en lesa það, sem stendur hér í nál.: „Nefndin hefur athugað frumvarpið og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.“ Vil ég einnig láta þess getið, að Pétur Sigurðsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.