13.05.1972
Efri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1763 í B-deild Alþingistíðinda. (1745)
237. mál, lögreglumenn
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Aðeins örstutta aths. Ég vil taka undir með hv. 2. þm. Norðurl. e., að þessi brtt. mín stefnir ekki málinu í hættu eða ætti ekki að gera það, eins og hv. 4. þm. Sunnl. vildi álíta. Hann nefndi enn fremur til rökstuðnings því, að ekki væri þörf á að samþykkja þessa brtt., að hér væri um tiltölulega fá sveitarfélög að ræða, sem hefðu byggt húsnæði eða ættu húsnæði ásamt ríkinu, sem notað væri fyrir lögregluna. Ég tel einmitt, að þetta séu rök fyrir samþykkt till, fyrst og fremst að því leyti til að það er verið að gera þessum tiltölulega fáu sveitarfélögum rangt til með því að láta þau leggja þetta til þessara afnota, sem önnur sveitarfélög almennt ekki gera, og það eru enn fremur rök fyrir samþykkt till. að því leyti til, að þá er upplýst, að baggi sá, sem ríkissjóði mundi verða bundinn með samþykkt till., yrði tiltölulega léttbær.
Í umsögn stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga kemur fram sérstaklega, að Húsavík og Hornafjörður eða sveitarfélögin þar hafi átt þátt í að koma húsnæðismálum lögreglunnar sæmilega fyrir og lagt nokkurt fé af mörkum. Ég hygg, að þarna megi bæta við Akureyri og e. t. v. örfáum öðrum stöðum, sem ég skal ekkert um segja, en af þessu held ég þó, að sé alveg ljóst, að hér sé ekki verið að binda ríkissjóði neinar þær fjárhagsskuldbindingar, sem hann getur ekki mjög auðveldlega undir risið. Og ég held, að það sé misskilningur hjá hv. 4. þm. Sunnl., að unnt sé að leysa þetta með samningum af hálfu ríkisstj., ef lagaheimild er ekki til staðar, því að í óbreyttum lögum er ríkisstj. blátt áfram bannað að semja við þessi sveitarfélög og bæta þannig aðstöðu þeirra gagnvart sveitarfélögum almennt í landinu.
Ég vil því enn á ný árétta nauðsyn á samþykkt brtt.