12.04.1972
Efri deild: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1977 í B-deild Alþingistíðinda. (2129)
111. mál, skipulagslög
Frsm. (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur á þskj. 513 gefið út nál. um frv. til l. um breyt. á skipulagslögum. N. hefur rætt frv. og mælir einróma með samþykkt þess. Efni þessa frv. er, að aftan við 31. gr. skipulagslaga bætist ný málsgr., svo hljóðandi:
„Innan skipulagsskyldra staða getur sveitarstjórn að fengnu samþykki skipulagsstjórnar, bannað efnistöku, grjótnám eða annan verulegan tilflutning eða brottnám jarðarefna ef líklegt má telja, að það valdi röskun lands, sem leitt getur af sér uppblástur eða valdið verulegum erfiðleikum við framkvæmd skipulags, sem þegar hefur verið ákveðið, eða við væntanlega gerð skipulagsuppdrátta af svæðinu og framkvæmd síðar. Sömuleiðis getur sveitarstjórn með samþykki skipulagsstjórnar sett það skilyrði fyrir því að falla frá slíku banni, að landssvæði það, sem efni er tekið úr, verði að framkvæmdum loknum lagfært eftir ákvörðun sveitarstjórnar, og krafizt hæfilegra trygginga fyrir efndum.“
Efnistaka til ýmissa mannvirkja, húsagerðar og annarra nota fer nú mjög í vöxt. Stórvirk tæki eru notuð og skilja gjarnan landið eftir í sárum. Ófagurt er víða um að litast, þar sem mikið efni hefur verið tekið, og enda þótt eigendur efnisins hafi gert ákveðnar kröfur í upphafi um viðskilnað, þá vilja efndir verða með ýmsum hætti. Það vill bera við, að þau fyrirtæki, sem hafa notað efni, hafi ekki alltaf bolmagn til þess að ganga sæmilega frá að efnistöku lokinni. Af slæmum viðskilnaði hlýzt uppblásturshætta, slysahætta og útlitshnekkir. Það er því fullkomlega eðlilegt, að sveitarstjórnir vilji hafa möguleika til þess að grípa í taumana, og það er það, sem hér er um að ræða. Ákvæði svipuð þessum er að finna í náttúruverndarlögum, 17. og 18. gr., en hvort tveggja er, að hér er um fyllri ákvæði að ræða og einnig finnst okkur fullkomlega eðlilegt, að þessi ákvæði sé einnig að finna í skipulagslögum. N. lítur því þannig á, að hér sé um gagnlega og þarfa viðbót við lög um skipulag að ræða, og leggur, eins og ég sagði, einróma til. að frv. verði samþykkt.