05.05.1972
Neðri deild: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

235. mál, skipulagslög

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Á þskj. 665 liggur fyrir álit heilbr.- og félmn. um þetta frv. um breyt. á skipulagslögum. N. mælir einróma með samþykkt frv. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru: Gylfi Þ. Gíslason, Stefán Valgeirsson og Jón Skaftason.

Hv. 1. flm. þessa frv. gerði grein fyrir málinu hér við 1. umr., og sé ég ekki ástæðu til að bæta þar neinu við.