12.05.1972
Efri deild: 79. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2080 í B-deild Alþingistíðinda. (2411)

151. mál, lífeyrissjóður sjómanna

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 745, hefur heilbr.- og félmn. haft þetta mál til meðferðar og mælir einróma með samþykkt þess, en fjarstaddir afgreiðslu málsins í n. voru hv. 6. þm. Reykv. og hv. 3. þm. Reykn. N. mælir sem sagt einróma með samþykkt frv., eftir að hún hefur lokið athugun sinni á málinu.