23.11.1971
Sameinað þing: 16. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)

Skýrsla um utanríkismál

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það hefur nú þynnzt á ráðherrabekkjum. Alveg sérstaklega finnst mér þó óviðunandi, að haldið sé áfram ræðum um skýrslu utanrrh. um utanríkismálin og varnarmálin, án þess að forsrh. sé viðstaddur, og einkum vegna þess, að hér hefur borið mjög mikið á milli í skilningi einstakra ráðh. á því, hvað felist í stjórnarsamningnum, og ég verð að leita eftir úrskurði hæstv. forsrh. um það, hvor þessara aðila skilur stjórnarsamninginn rétt. Meðan hæstv. forsrh. er ekki við, tel ég ekki viðkunnanlegt, að þessum umr. sé haldið áfram.