23.11.1971
Sameinað þing: 16. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2346 í B-deild Alþingistíðinda. (2505)

Skýrsla um utanríkismál

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því, af því að hæstv. utanrrh. svaraði mér því, að hann sæi ekki muninn á svörum sínum og hæstv. viðskrh. við spurningum mínum, að spyrja hann, hvort það sé rétt eftir honum haft, að fyrst skuli fara fram rækileg athugun á aðstöðu hersins hér á landi og síðan eigi að taka ákvörðunina um brottför hans eða áframhaldandi dvöl hans hér. Er þetta rétt eftir ráðh. haft eða ekki?