23.11.1971
Sameinað þing: 16. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2346 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

Skýrsla um utanríkismál

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég verð að gera það fyrir vin minn, hv. 2. þm. Reykv., að fara með það í þriðja sinn, sem ég sagði hér um endurskoðun samningsins. Endurskoðun hefur verið ákveðin í því augnamiði, að herinn geti farið í áföngum. Uppsögn fer aðeins fram eftir könnun þá, sem yfir stendur og á grundvelli hennar.