11.12.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)

Herstöðva- og varnarmál

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ræða utanrrh. túlkaði nákvæmlega margyfirlýsta stefnu ríkisstj. Einstökum ráðh. var að sjálfsögðu kunnugt um, hvernig málflutningur utanrrh. efnislega mundi verða. Hins vegar var ræða utanrrh. ekki upp lesin á ríkisstjórnarfundi, enda er sá háttur ekki á hafður í þessari ríkisstj., að ræður einstakra ráðherra séu lesnar upp á fundum ríkisstj., og gildir það jafnt hvort um er að ræða ræður utanrrh. eða annarra ráðh.