09.05.1972
Sameinað þing: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2439 í B-deild Alþingistíðinda. (2611)

Fiskveiðilandhelgismál

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Mér er mjög mikil ánægja að svara fsp. hv. síðasta ræðumanns. Ég hef gert ráðstafanir til þess, að viðtal mitt við Morgunblaðið verði sent þeim, sem var í forsæti og bauð mér til fundar í neðri málstofunni, svo og til þess blaðs, sem birti greinina.