10.05.1972
Sameinað þing: 66. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2446 í B-deild Alþingistíðinda. (2622)

Styrjöldin í Víetnam

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir góð svör og vil lýsa ánægju minni yfir, hversu fljótt hann hefur brugðizt við, eftir að fréttist um þessa atburði austur í Vietnam. Ég vil vekja athygli á, að til umr. er síðar á fundi Nd. till., sem varðar Vietnam, og því mun ég ekki að þessu sinni lengja umr.