29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2475 í B-deild Alþingistíðinda. (2650)

Húsnæðismál menntaskóla o.fl.

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég bið hæstv. menntmrh. afsökunar á því, að ég hef tekið rangt eftir því, sem hann sagði í fyrstu ræðu sinni. Það var engan veginn mín ætlun að rangfæra hans orð og biðst velvirðingar á því, en nú sé ég og heyri skýrt, hvað hann sagði um málið.

Varðandi hitt, þá hef ég þá einu afsökun, að það nýjasta, sem ég las um þessi mál, var leiðari Tímans í morgun, og þaðan hef ég töluna 12, sem ég nefndi áðan.

Herra forseti. Ég biðst enn þá meiri afsökunar á því, að ég nota Tímann sem heimild.