06.03.1972
Sameinað þing: 45. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (2659)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli á því, að það eru nokkur mál í fjvn., sem ekki hafa fengið afgreiðslu, þótt langur tími sé liðinn frá því, að þeim var vísað þangað.

1. Þáltill. um áætlun opinberra framkvæmda í Suðurlandskjördæmi, sem allir þm. Sunnl. hafa flutt. Till. var vísað til fjvn. 7. des.

2. Þáltill. um rannsóknir á hafnarstæði við Dyrhólaey, sem 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi flutti á meðan hann tók sæti hér á Alþ. Þessari till. var vísað til fjvn. 30. nóv. s. l.

3. Till., sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi einnig flutti um framkvæmdaáætlun vegamála. Þessari till. var einnig vísað til fjvn. 30. nóv.

Ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann kalli eftir afgreiðslu þessara tillagna.