08.11.1971
Sameinað þing: 11. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (2687)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. e., Gísli Guðmundsson, hefur vikið af þingi um skeið vegna sjúkleika. Óskað hefur verið, að sæti hans taki á þingi 1. varamaður Framsfl. í kjördæminu, Jónas Jónsson ráðunautur. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörgögn varamannsins og mælir með því, að kosning hans verði metin gild og kjörbréf hans samþykkt.