15.12.1971
Sameinað þing: 25. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2497 í B-deild Alþingistíðinda. (2708)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Ingu Birnu Jónsdóttur, en það er undirskrifað af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis og samkv. kjörbréfinu er hún rétt kjörin sem 9. varaþm. Reykv. Kjörbréfanefnd leggur einróma til, að kosning Ingu Birnu Jónsdóttur sé metin gild og kjörbréf hennar samþykkt.
Jafnframt vil ég geta þess, að kjörbréf Sigurðar Magnússonar rafvirkja hafði ekki borizt n. og gat hún því ekki afgreitt það nú á þessum fundi.