16.02.1972
Sameinað þing: 38. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (2723)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Halldórs S. Magnússonar viðskiptafræðings, sem nú tekur sæti hér á hv. Alþ. í forföllum hv. 3. landsk. þm., Bjarna Guðnasonar. Samkv. kjörbréfinu, sem gefið er út af landskjörstjórn, er Halldór S. Magnússon 1. varamaður landsk. þm. SF.

Að lokinni athugun leggur kjörbréfanefnd til, að kosning Halldórs S. Magnússonar sé metin gild og kjörbréf hans samþykkt.